já,það er farið að styttast í jólin og ég er að meina það.
það eru ekki nema 30 heilir dagar fram að Aðfangadegi, og 29 dagar þangað til ég fæ skötu, og ég er búin að bíða eftir henni í 365 daga, ég ætla svo að elda hana og menga húsið mitt, eins og sumir orða það.
Þegar ég var yngri var ég alveg svakalega æst í skötu og heimtaði hana í fleiri mál en bara á Þorláksmessu, ég borðaði hana að vísu ekki með hamsatólg, oj, vildi ekki sjá það.
En ég fór í kaupfélagið og ætlaði að biðja hann Dodda( i Kaupfélaginu ) um skötu, en hun var náttúrulega ekki til allt árið, því miður , svo svona í sárabætur keypti mamma saltfisk, sem mér fannst og finnst algjört sælgæti líka.
Þetta vildi ég borða með kartöflum og miklu íslensku smjöri. Og þetta mátti stappa aðeins saman og borða svo á meðan það var heitt. Ekkert varið í þetta kalt.
mér finnst allt í lagi að sjóða skötu heima á Þorláksmessu, því daginn eftir á sjálfan Aðfangadag sýður maður reykt kjöt og á Jóladag er soðið hangikjötið. og þar með ætti lyktin að vera farin.
Annar vani á jólunum er að borða heimalagaðann ís, þetta er reyndar nýr vani, sem ég hef sett á á mínu heimili, og ég geri alltaf ís , annað hvort á Þorlaksmessu eða á aðfangadag, og svo stundum ber ég fram ávexti með og íssósu, en við borðum alltaf ísinn þegar við erum búin að opna gjafirnar.
En fram að jólum verð ég að undirbúa jólin, baka aðeins, ekki að vísu 17 sortir, nei , alls ekki , kannski 5.
ég er ekki mikið fyrir smákökur, svo ég styrki alltaf Frón á jólunum, og kaupa smákökurnar í Bónus.
ég er ekki byrjuð á jólakortunum, á nu slatta af kortum ´siðan í fyrra og þvi ekkert til fyrirstöðu að fara að byrja.
Ágústa er náttúrulega í Bandaríkjunum og þeir sem ekki vita um ´siðuna hennar geta kíkt á www.123.is/agusta, og þeir sem vilja fá leyniorðið á myndasíðuna biðja annað hvort mig eða hana um það.
Ég er nuna komin í helgarfrí og ætla að njóta þess og þrifa aðeins um helgina og sitja og prjóna lopavesti sem ég þarf að klára og senda erlendis.
Svo er ég núna að láta brauðvélina mína gera deig fyrir okkur Ingimund og við ætlum að setja eitthvað gott á hana og borða hana fyrir framan sjónvarpið meðan við horfum á Útsvar.
Jæja, best að hætta þessu pári og fara að undirbúa eldhusið og skera niður álegg. svo , ég vona að þið hafið það gott um helgina og gangið hægt um gleðinnar dyr.
kveðja Steina